top of page
Aðgangur að Efni

Kaupið aðgang að efninu með því að smella hér fyrir neðan.
Athugið að þetta efni er á kynningarverði á meðan vefsíðan er enn í tilraunar-ham.*

 

   _______

Leiðbeiningar til smáframleiðenda um að hefja framleiðslu, dreifingu og sölu matvæla

​

Þess er krafist, að hálfu hins opinbera, að áður en hafist er
handa við sölu eða dreifingu  matvæla, skuli þar til bær
yfirvöld veita til þess leyfi.

​

Grunnur að leyfisveitingu er að:

 

  • framleiða örugg matvæli

  • neytendum stafi ekki hætta af neyslu þeirra

  • með skýrum hætti komi fram hver sé ábyrgur fyrir framleiðslunni

  • það komi fram hvað eigi að framleiða, úr hverju, hvar og hvernig

  • það liggi fyrir staðfesting, að allt hafi verið gert, sem tryggir
    öryggi matvæla

​

Smáframleiðsla matvæla hér á landi er þó nokkur og mun líklega fara vaxandi á næstu árum. Leyfisveitendur og eftirlitsaðilar krefjast þess í mun ríkari mæli að framleiðendur hafi faglega þekkingu og reynslu til að geta framleitt öruggar og góðar vörur.

Með þessu leiðbeiningum, er þeim sem ætla að hefja smáframleiðslu matvæla, gert kleift að sækja sér þekkingu sem nýtist við umsókn um starfsleyfi, innra eftirlit og gerð gæðahandbókar. 

​

Smáframleiðsla matvæla

_____________________________

 

Fullt verð​                           18.200,-

 Kynningarverð​              9.500,-

_____________________________

 

Verð                       9.500,- 

Um fræðslusefnið á netinu​

​Matís og starfsmenn þess eru bakhjarlar þessa verkefnis. Fræðsluefnið er unnið úr ýmsum gögnum s.s. þeim lögum og reglugerðum sem fjalla um matvæli, úr fyrri rannsóknum og því náms- og kynningarefni sem útbúið hefur verið hjá Matís og Matvælastofnun.

Hægt er að kaupa aðgang að þessu fræðsluefni, olithor@matis.is veitir allar nánari upplýsingar. Kaupandi þarf að senda inn þátttökutilkynningu, þar sem fram kemur nafn, kennitala, heimilisfang og netfang. Þegar staðfesting á greiðslu liggur fyrir þá fær viðkomandi lykilorð á viðkomandi vefsvæði og staðfestingu á að hafa fengið fræðsluefnið til sín.

​

​

​

​

bottom of page